BERG - Trésmíðaverkstæði - 2021-compressed

PARKETLÍM

Einþátta lím fyrir fljótandi parket. Prófað samkvæmt EN 204 í álagsflokki D3.

Mikið þol gegn vatni. • Prófuð D3 gæði samkvæmt DIN/EN 204. Prófað af gluggatæknistofnuninni Institut für Fenstertechnik í Rosenheim í Þýskalandi. Sérstök lögun flösku og loks. • Hægt er að skera af með mismunandi breidd og loka víðum stútnum. Flaskan fer vel í hendi. Auðvelt í notkun. Fljótt að harðna. • Fljótt að harðna með miklu þoli gegn vatni og hámarksviðloðun. Inniheldur ekki leysiefni. Límið er glært þegar það harðnar • Límfúgurnar eru ekki sýnilegar. Harðnaðar límingar eru seig-teygjanlegar. Notkun: • Berið jafnt lag af lími á nótina eða tappann á lang- og skammhliðinni samkvæmt leiðbein- ingum frá framleiðanda gólfefnisins. Við mælum hins vegar með því að límið sé borið á nótina ofanverða og tappann neðanverðan til að tryggja nægilega dreifingu límsins. • Yfirborðið verður að vera þurrt og laust við ryk, fitu og önnur efni sem hrinda frá sér. Kanna verður rakastigið í parketinu, loftinu og gólfinu og tryggja að það samræmist upplýsingum með vörunni áður en parketlímið er sett á. Tengja verður nótina og tappann innan 10 mínútna. Endanlegum styrkleika er náð eftir u.þ.b. 48 klukkustundir. Gólfhiti má ekki vera í gangi á meðan verið er að leggja parketið og límið er að þorna. Farið eftir leiðbeiningum frá framleiðanda parketsins. • Ef ómeðhöndlaður málmur kemst í samband við tannínsýruna í viðnum getur það valdið litabreytingum í viðnum, þá sérstaklega bláum blettum í eik og rauðum blettum í beyki. Í einstaka tilvikum geta efni í viði valdið ófyrirsjáanlegum litabreytingum í ýmsum gerðum viðar, t.d. beyki, kirsuberjaviði eða hlyni. • Ekki er hægt að líma parket/plastparket við undirlag. • Nýjar límskvettur er hægt að fjarlægja með vatni. Eldra lím er hægt að leysa upp með nítróþynni eða asetóni og þurrka svo af, en það getur þó skilið eftir sig bletti á parketinu. Lokið flöskunni eftir notkun. Má ekki vera í frosti. • Eftir að gólfefni er lagt má ganga á því eftir 8 klst. en það þolir ekki fullt álag fyrr en að 48 klukkustundum liðnum (við 23°C). • Vinnslutíminn og það hversu lengi límið er að harðna fer að miklu leyti eftir skilyrðum á staðnum, t.d. hitastiginu og rakastiginu í viðnum, því hversu mikið er notað af lími og spennunni í gólfefninu.

Lýsing / ílát

Innihald Vörunúmer

M. í ks.

0892 100 040

Brúsi

750 g

1/6

Notkun: Límt með parketlími innandyra þar sem skammvarandi snerting við vatn eða snertivatn kemur oft fyrir. • Til að líma tappa og nótir á parketi, t.d. plankaparket, línóleumplanka og tilbúna korkplanka.

• Til að líma tappa og nótir á plastparketi. • Til að líma spónaplötur og annað efni úr viði. • Fyrir samsetningarlímingu, límingu á flötum, brettafúgulímingu og kubbalímingu. • Fyrir mjúkan og harðan við.

Tæknilegar upplýsingar:

Grunnefni

Pólývinýlasetatdreif u.þ.b. 10 mínútur

Vinnslutími fyrir 150 g/m2 / +20°C Seigja við 23°C skv. ISO 2555

u.þ.b. 12.000 mPa.s við 23°C (skv. ISO 2555)

Þéttleiki (við 20°C)

1,09 g/cm3

pH-gildi

u.þ.b. 3

Pressunartími

30 mín. við 20°C

Endanlegur styrkleiki Besta notkunarhitastig

eftir u.þ.b. 48 klst. við 23°C

+15 til +25°C

Hitaþol Magn

+80°C

Flaskan nægir fyrir u.þ.b. 20 m2/u.þ.b. 25 g á hvern metra 12 mánuðir ef geymt á köldum stað

Endingartími

Notkunarskilyrði (VOB, hluti C, DIN 18356) Rakastig tilbúins parkets

8% (±2%)

Rakastig þegar parket er lagt Rakastig steinsteypts undirlags

ætti ekki að vera yfir 70%

hám. 2,0%. hám. 0,5%. hám. 0,5%.

Rakastig anhydrid-gólfs

Rakastig anhydrid-flotsteypu

Þær upplýsingar sem hér koma fram byggja á prófunum okkar og reynslu og eru settar fram samkvæmt bestu vitneskju. Hins vegar getum við ekki borið ábyrgð á afleiðingum af notkun efnisins í einstaka tilvikum sökum margbreytilegra notkunarmöguleika og skilyrða við geymslu og vinnslu sem við getum ekki haft áhrif á. Þessi fyrirvari nær einnig til þjónustu tækni- og sölumanna okkar sem veitt er án ábyrgðar. Við mælum eindregið með því að notandinn geri sjálfur prófanir í öllum einstaka tilvikum. Við ábyrgjumst samfelld gæði framleiðsluvara okkar. Réttur til tæknilegra breytinga og frekari framþróunar vörunnar er áskilinn.

41

Made with FlippingBook - Online magazine maker