Vinnuföt og skór - 2023

Fatastaðlar og merkingar

EN ISO 11611

Hlífðarfatnaður til notkunar við logsuðu og tengd ferli samkvæmt EN ISO 11611. Efni og saumar prófuð samkvæmt (ISO 15025) Eldur má ekki breiðast út, merking A1 eða A2 eða A1+A2. Engin göt koma fram. Engar logandi eða bráðnar leifar eiga að liggja eftir.

Miðgildi logunar elds á að vera < 2 sekúndur. Miðgildi logunar glóðar á að vera < 2 sekúndur. Flokkur 1 : Kveiking á yfirborði: A1 (ISO 15025)

Kveiking að neðanverðu: A2 (ISO 15025) Skvettukraftur: 15 dropar (ISO 15025) Geislahiti: RHTI 24> 7 sekúndur (EN ISO 6942)

Ætlað til notkunar við: Handvirka logsuðutækni með lítilli skvettu og dropamyndun t.d: Gassuðu, TIG logsuðu, MIG logsuðu, míkróplasmasuðu, brösun, punktsuðu, MMA logsuðu (með rútíl suðuvír). Valviðmiðanir með tilliti til umhverfisins: Notkun véla, t.d: Súrefnisskurðarvél, plasmaskurðarvél, viðnámslogsuðuvélar, vélar til að sprauta bráðnum málmi, bekksuða (bench welding).

Flokkur 2 : Kveiking á yfirborði: A1 (ISO 15025)

Kveiking að neðanverðu: A2 (ISO 15025) Skvettukraftur: 25 dropar (ISO 9150) Geislahiti: RHTI 24> 16 sekúndur (EN ISO 6942)

Ætlað til notkunar við: Handvirka logsuðutækni með mikilli skvettu og dropamyndun t.d: MMA logsuðu (með venjulegum eða sellúlósa suðuvír), MAG logsuðu (með CO² eða blönduðum lofttegundum). MIG logsuðu (með háum straumi), logsuðu með ljósboga með mjúkum kjarna og eigin hlíf (self-shielded flux cored arc welding), plasmaskurð, logsuðu með holun (gouging), súrefnisskurð, sprautun bráðinna málma. Valviðmiðanir með tilliti til umhverfisins: Notkun véla t.d: Á þröngum svæðum, logsuða/skurður ofan við höfuðhæð eða í svipuðu takmörkuðu rými. Veljið logsuðu úr flokk 1 eða 2 í samræmi við verk. Mengun af völdum olíu, fitu, svita eða lífrænna leysiefna sem eldfimra efna kann að skerða eða skemma brunatregðueiginleika fatnaðarins. Aukning súrefnis í andrúmslofti dregur verulega úr eldvörn. Sérstaka varúð skal sýna á þröngum svæðum. Vegna notkunar er ekki hægt að verja alla hluta logsuðubúnaðarins sem valda straumi gegn beinni snertingu. Fatnaðurinn er aðeins ætlaður til hlífðar gegn snertingu fyrir slysni við rafstrengi með allt að 100 V d.c. spennu í styttri tíma. Þörf er á frekari einangrunarlögum ef aukin hætta er á raflosti. Einnig kann að vera þörf á aukalegri hlutalíkamshlíf t.d. við logsuðu ofan við höfuðhæð. Með notkun slitnar fatnaðurinn og vörn gegn útfjólubláu ljósi minnkar, einkum við MIG/MAG logsuðu. Notkun hlífðarbúnaðar af hærra stigi og aukalegs hlífðarbúnaðar (svo sem leðurerma, svunta o.s.frv.) lengir verkun fatnaðarins og eykur vernd viðkomandi einstaklings. Ef notandinn finnur fyrir einkennum sem líkjast bruna skal gera við fatnaðinn eða skipta um hann. Einfalt er að athuga vörn gegn útfjólubláu ljósi með því að bera fatnaðinn við 100 W volfram peru í u.þ.b. 1 m fjarlægð (samsvarar lengd handleggs) frá perunni, en ef ljós sést gegnum efnið kemst útfjólublátt ljós einnig í gegn.

EN 61482-1-2 Hlífðarfatnaður gegn hættu vegna hita af rafmagnsljósboga.

Kröfur: Hneppa þarf hnöppum og loka rennilásum við notkun og klæðast skal fatnaði fullkomlega. Til þess að hlífa líkamanum í heild skal ganga með hjálm með hlífðarskyggni fyrir andliti, hlífðarhanska og skófatnað (stígvél). Ekki skal ganga í neinum öðrum fatnaði úr bræðanlegum efnum, svo sem pólýamíði, pólýester eða akrýl.

Flokkur 1 efni og fatnaður eru prófuð í 4 KA box-prófi (prófunaraðstæður 400 V AC (50 HZ) - 4KA - 500ms). Flokkur 2 efni og fatnaður eru prófuð í 7 KA box-prófi (prófunaraðstæður 400 V AC (50 HZ) - 7KA - 500ms).

EN 343 Hlífðarfatnaður gegn slæmu veðri. Ef hetta er á fatnaðinum skal nota hana til þess að hljóta sem mestu vernd við vinnu í slæmu veðri. X = Þol gagnvart vatnsgegnflæði, frá flokki 1 til 3 (sjá áletrun) og er flokkur 3 hæstur. Y = Þol gagnvart vatnsgufu, frá flokki 1 til 3 (sjá áletrun) og er flokkur 3 hæstur.

31

Made with FlippingBook Digital Proposal Creator